Ólafur Ragnar hættur við framboð

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ætlar ekki að gefa kost …
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ætlar ekki að gefa kost á sér í forsetakosningunum í júní. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram til endurkjörs. Í yfirlýsingu frá Ólafi segir að nú telji hann ljóst, með atburðum síðustu daga, að þjóðin eigi kost á að velja frambjóðendur sem hafi „umfangsmikla þekkingu á eðli, sögu og verkefnum forsetaembættisins; niðurstaða kosninganna gæti orðið áþekkur stuðningur við nýjan forseta og fyrri forsetar fengu við sitt fyrsta kjör.

Við þessar aðstæður er bæði lýðræðislegt og eðlilegt, eftir að hafa gegnt embættinu í 20 ár, að fylgja í ljósi alls þessa röksemdafærslu, greiningu og niðurstöðu sem ég lýsti í nýársávarpinu.

Ég hef því ákveðið að tilkynna með þessari yfirlýsingu þá ákvörðun mína að gefa ekki kost á mér til endurkjörs.“

Yfirlýsing Ólafs Ragnars í heild:

„Í nýársávarpi mínu til íslensku þjóðarinnar 1. janúar bað ég landsmenn alla að íhuga vel lýsinguna á kjörstöðu Íslands sem var meginboðskapur ávarpsins og tilkynnti að í „ljósi hennar og á grundvelli lýðræðisins sem er okkar aðalsmerki finnast mér blasa við hin réttu vegamót til að færa ábyrgð forseta á aðrar herðar og hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til endurkjörs.“

Í kjölfar hinnar sögulegu mótmælaöldu sem reis hátt í byrjun apríl knúðu margir á um að ég breytti þessari ákvörðun og gæfi kost á mér á ný þótt ég hefði þegar gegnt embætti forseta í tuttugu ár; höfðuðu til umróts og óvissu og lítils fylgis yfirlýstra frambjóðenda.

Af skyldurækni og ábyrgð gagnvart þeim sem lengi höfðu sýnt mér mikið traust tilkynnti ég 18. apríl að ég myndi verða við þessum óskum en lýsti jafnframt yfir, að ég myndi taka því vel ef í ljós kæmi að aðrir nytu nægilegs trausts þjóðarinnar til að gegna embættinu.

Kannanir hafa síðan sýnt að fjöldi kjósenda vildi fela mér embættið á ný en það hefur líka orðið sú ánægjulega þróun að öldur mótmæla hefur lægt og þjóðmálin eru komin í hefðbundinn og friðsamlegri farveg.

Það er nú líka orðið ljóst með atburðum síðustu daga að þjóðin á nú kost á að velja frambjóðendur sem hafa umfangsmikla þekkingu á eðli, sögu og verkefnum forsetaembættisins; niðurstaða kosninganna gæti orðið áþekkur stuðningur við nýjan forseta og fyrri forsetar fengu við sitt fyrsta kjör.

Við þessar aðstæður er bæði lýðræðislegt og eðlilegt, eftir að hafa gegnt embættinu í 20 ár, að fylgja í ljósi alls þessa röksemdafærslu, greiningu og niðurstöðu sem ég lýsti í nýársávarpinu.
Ég hef því ákveðið að tilkynna með þessari yfirlýsingu þá ákvörðun mína að gefa ekki kost á mér til endurkjörs.

Um leið þakka ég einlæglega þann mikla stuðning sem ég hef notið og vona að allt það góða fólk sem hvatti mig til framboðs sýni þessari ákvörðun velvilja og skilning.

Þessi niðurstaða mín er studd þeirri fullvissu að þjóðin getur nú farsællega valið sér nýjan forseta og ég er, eftir langa setu hér á Bessastöðum, bæði í huga og hjarta reiðubúinn að ganga glaður til nýrra verka.“

Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert