Þorgrímur hættur við forsetaframboð

Þorgrímur Þráinsson ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta.
Þorgrímur Þráinsson ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta. Heiðar Kristjánsson

Þorgrím­ur Þrá­ins­son, rit­höf­und­ur er hættur við að fara í forsetaframboð, þetta staðfestir hann í viðtali við mbl.is. En í aðsendri grein sem birt­ist í Morg­un­blaðinu í morg­un sagði Þorgrímur að áhug­inn sinn á ­embætt­inu hafi fari dvín­andi.

„Ég er ekki að fara í framboð, það er alveg á hreinu,“ segir Þorgrímur. og spyr hvort hann hafi ekki orðað grein sína nógu skýrt.

„Brátt eru liðnir fimm mánuðir frá því ég var spurður, al­gjör­lega óvænt, hvort ég hefði hugsað mér að sækj­ast eft­ir því að verða næsti for­seti Íslands. Af heiðarleika og hrein­skilni svaraði ég ját­andi. Á síðustu vik­um hef­ur áhug­inn á embætt­inu fjarað út, af marg­vís­leg­um ástæðum,“ seg­ir  í grein Þorgrím­s.

„Mér fannst þetta fjara út og mig langar frekar að halda áfram að sinna þeim málefnum sem ég nefni í greininni,“ segir Þorgrímur.

Í júní, þegar for­seta­kosn­ing­arn­ar fara fram, standi hug­ur hans fyrst og fremst til að leggja sitt af mörk­um til að Ísland standi sig sem best á EM í Frakklandi. Þá vilji hann einnig  halda áfram að skrifa barna­bæk­ur og gera sitt besta til að hreyfa við ungmennum með fyrirlestrum sínum „Verum ástfanginn af lífinu“.

„Ég mun halda áfram að skrifa greinar um þau málefni sem mér finnst skipta máli í samfélaginu, þannig að mín rödd heyrist e.t.v. áfram þó að ég sé ekki í framboði.“

Málskotsrétturinn ætti að vera fólksins

Þorgrím­ur skrif­ar grein sinni að hann hafi full­an skiln­ing á því að fólk eigi al­mennt erfitt með að sjá ein­hvern feta í fót­spor Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar í embætti for­seta Ísland. „Afstaða fólks til embætt­is­ins hef­ur mót­ast á þeim 20 árum sem Ólaf­ur hef­ur starfað sem for­seti og þess vegna mun umræðan fram að kosn­ing­um án efa lit­ast af því hvaða sýn menn hafa á störf nú­ver­andi for­seta.“

Sjálf­ur sé hann sömu skoðunar og Vig­dís Finn­boga­dótt­ir. „Að for­seti Íslands eigi að hafa sem minnst póli­tísk af­skipti, nema þau sem stjórn­ar­skrá­in kveður á um. Og mál­skots­rétt­ur­inn ætti fyrst og síðast að vera í hönd­um fólks­ins í land­inu. Þar fyr­ir utan er galið að næsti for­seti þjóðar­inn­ar verði hugs­an­lega kos­inn með inn­an við 15% at­kvæði. Því þarf að breyta.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert