Gleðin skein af Jóakim og Marie

Marie og Jóakim á Holtinu.
Marie og Jóakim á Holtinu. mbl.is/Árni Sæberg

Gleðin skein af Jóakim Danaprins og Marie prinsessu, eiginkonu hans á Hótel Holti í kvöld. Þar sóttu þau hátíðarkvöldverð Dansk-Is­landsk Sam­fund. Hjónin sátu meðal annars til borðs með Vigdísi Finnbogadóttur og Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Jóakim Danaprins og eig­in­kona hans Marie prins­essa skoðuðu Reykja­vík í morg­un og komu m.a. við í Hörpu þar sem þau kynntu sér húsið og starf­semi þess. Því næst skelltu þau sér í Skeif­una þar sem versl­un Epal er. Ekki var annað að sjá en að þau kynnu vel við sig í Hörpu 

Frétt mbl.is: Kóngafólkið skoðar sig um (myndskeið)

Jóakim, Marie, Vigdís Finnbogadóttir og Eygló Harðardóttir.
Jóakim, Marie, Vigdís Finnbogadóttir og Eygló Harðardóttir. mbl.is/Árni Sæberg
Marie, Jóakim og Vigdís Finnbogadóttir.
Marie, Jóakim og Vigdís Finnbogadóttir. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert