Snjóflóð stöðvaðist á varnargarði

Snjóflóð úr hlíðinni ofan Siglufjarðarkaupstaðar stöðvaðist á varnargarði ofan Hávegar …
Snjóflóð úr hlíðinni ofan Siglufjarðarkaupstaðar stöðvaðist á varnargarði ofan Hávegar á Siglufirði, líklega þann 12. desember 2014. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Telja verður líklegt að snjóflóð hefði náði niður á eða niður undir efstu hús á Siglufirði ef snjóflóðagarðurinn ofan Hávegar hefði ekki stöðvað það. Snjóflóð úr hlíðinni ofan Siglufjarðarkaupstaðar stöðvaðist á varnargarðinum líklega þann 12. desember síðastliðinn.

Þetta kemur fram á vefsvæði Veðurstofu Íslands. Þar segir að flóðið hafi átt upptök undir Fífladalabrún efst í svokölluðu Fífladalagili í um 340 m h.y.s. Það flæddi niður gilið og steyptist niður á veg ofan þvergarðs, sem nefndur er Skálarrípill og er skammt ofan efstu húsa í bænum.

Flóðið stöðvast á varnargarðinum á rúmlega 50 m kafla og skildi eftir sig á garðinum grjót og gróður sem það hreif með sér á leiðinni niður hlíðina. Um tvo metra vantar upp á að flóðið nái upp á topp garðsins en snjókögglar köstuðust yfir garðbrúnina á nokkrum kafla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert