Skýjaluktir „stórhættulegar“

Skýjalukir á lofti.
Skýjalukir á lofti.

Neytendastofa varar almenning við notkun skýjalukta, eða kínverskra ljóskera, því þær geti verið stórhættulegar og valdið miklu tjóni. „Það kemur fyrir að luktir hafa enn verið logandi þegar þær hafa fallið til jarðar og valdið íkveikju á húsum og gróðri.“

Á vefsvæði Neytendastofu er fjallað um skýjaluktir og segir að í Evrópu hafi skapast mikil umræða vegna þeirrar hættu sem af þeim getur skapast. „Þegar hafa  um 10 ESB-ríki bannað þessar luktir s.s. Finnland, Austurríki og Spánn. Sum ríki hafa sett takmarkanir og gert auknar öryggiskröfur t.d. Hollendingar.“

Skýjaluktir eru gerðar úr pappír og innihalda vaxkubb eða annað eldfimt efni sem kveikt er í. Við það fyllist luktin af heitu lofti sem veldur því að luktin hefst á loft. Skýjaluktin helst aðeins á lofti eins lengi og loginn lifir. „Vandamálið við luktina er að ekki er hægt að hafa stjórn á hvert hún fer eða hvar hún lendir.“

Auk þess segir Neytendastofa að ljósin líkist mjög neyðarblysum og Landhelgisgæslan verði að kanna hverja tilkynningu sem berst um neyðarblys á lofti. „Hjá bresku strandgæslunni hefur tilkynningum fjölgað um 700% þar sem fólk hefur talið sig sjá neyðarblys en í reynd var um að ræða ljósker.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert