„Vestmannaeyingar hafa valið nýja framtíðarsýn"

mbl.is/KG

Sjálfstæðisflokkurinn í Vestmannaeyjum bætir við sig manni og fær fjóra menn inn og 54% og hreinan meirihluta eftir fyrstu talningu. „Við erum með hreinan meirihluta með stærsta sigri Sjálfstæðismanna frá upphafi í Vestmannaeyjum og höfum fulla trú á að við eigum eftir að bæta við okkur," sagði Elliði Vignisson efsti maður á lista Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum.

„Það er alveg ljóst að Vestmannaeyingar hafa valið nýja framtíðarsýn," sagði Elliði. Eftir þrjár mismunandi bæjarstjórnir á síðasta kjörtímabili telur hann að kjósendur í Vestmannaeyjum vilji að sér verði stýrt af hreinum meirihluta Sjálfstæðismanna næstu fjögur árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert