Framboðslisti VG í Kópavogi samþykktur

Framboðslisti VG í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnakosningar í vor var samþykktur á félagsfundi hreyfingarinnar í gærkvöld. Fjögur efstu sætin voru bundin eftir prófkjör sem haldið var í lok nóvember.

Sæti listans skipa eftirfarandi:

  1. Ólafur Þór Gunnarsson, öldrunarlæknir
  2. Guðbjörg Sveinsdóttir, geðhjúkrunarfræðingur
  3. Emil Hjörvar Petersen, formaður VG í Kópavogi og háskólanemi
  4. Lára Jóna Þorsteinsdóttir, sérkennari
  5. Mireya Samper, myndlistarkona/kvikmyndagerðakona
  6. Sindri Kristinsson, nemi og stuðningsfulltrúi
  7. Guðrún Gunnarsdóttir, söngkona
  8. Birgir Bragason, tónlistarmaður
  9. Guðmundur Ingi Kjerulf, stjórnmálafræðingur
  10. Margrét Pálína Guðmundsdóttir, kennari
  11. Jónas Þór Guðmundsson, sagnfræðinemi
  12. Ernst Backman, íþróttakennari
  13. Hafdís Hannesdóttir, félagsráðgjafi
  14. Ingvar Ingólfsson, kennari
  15. Ellen Sif Sævarsdóttir, nemi
  16. Hreggviður Norðdahl, jarðfræðingur
  17. Sigmar Þormar, fyrirtækjaráðgjafi
  18. Erlendur Jónsson, efnafræðinemi
  19. Hrafnhildur Scheving, húsmóðir
  20. Þórður Helgason, dósent KHÍ
  21. Sigurrós Sigurjónsdóttir skrifstofukona
  22. Valdimar Lárusson, leikari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert