Fréttaskýring: Uppruni geimvera á Íslandi

Kvikmyndaver Ridleys Scotts er á Suðurlandi, nálægt Heklu. Þar starfa …
Kvikmyndaver Ridleys Scotts er á Suðurlandi, nálægt Heklu. Þar starfa rúmlega 200 manns. mbl.is/RAX

Ridley Scott, leikstjóri og framleiðandi, er staddur á landinu og er að taka upp nýjustu kvikmynd sína Prometheus. Blaðamaður hitti hann í miðbæ Reykjavíkur og spjallaði við hann um væntanlega stórmynd hans.

Drunur í loftræstikerfi fundarherbergisins minntu á geimskipið í hinni sögufrægu kvikmynd Alien, sem var skemmtilega viðeigandi, þar sem Prometheus hafði verið nefnd undanfari að Alien. Ridley Scott gekk inn, ásamt Mark Huffam, framleiðanda myndarinnar, og viðtalið hófst.

Ekki er langt síðan ákveðið var að taka upp atriði í kvikmyndinni á Íslandi og sagði Ridley að aðrir möguleikar hafi staðið til boða. Ísland hafi þó afburða fallega náttúru að geyma. „Það er hægt að fá þetta umhverfi annarsstaðar, til dæmis í Kaliforníu, í Mahaví-eyðimörkinni, en þessi staður er mun frumstæðari og villtari, finnst mér. Náttúran hér hefur ákveðinn karakter og mér líkar vel við svarta grjótið og auðnina. Þetta var betri valkostur. Að vera hér er stórkostlegt, virkilega stórkostlegt,“ sagði Ridley. „Það sem ég hef fundið hér á landi er svakaleg fegurð. Þetta er nákvæmlega það sem ég vildi fá frá byrjun“. Atriðið sem tekið er hér á landi birtist meðal annars í byrjun myndarinnar og á að vera frá upphafi heimsins. Tökur fara fram á Suðurlandinu, nálægt Heklu, og starfa þar rúmlega 200 manns, þar af um 100 Íslendingar. Þörfin á vinnuafli fyrir svona stórmynd er jafnan mikil enda margt sem þarf að gera. Ridley segir fréttir af hugsanlegu gosi ekki hafa haft nein áhrif á sig og sér hafi langt í frá verið brugðið við upplýsingarnar. „Nei, þegar menn eru í vinnu eins og minni er ekkert sem kemur manni úr jafnvægi. Það er bara partur af ferlinum.“

Verkfræðingar geimsins

Myndin kemur til með að vera þung og fremur viðbjóðsleg, það má líklega bera saman við Alien, og fjallar um guði og verkfræðinga, verkfræðinga geimsins. Myndin kannar uppruna óþekktra vera, það er geimvera, sem aðeins birtust örstutt í áðurnefndri mynd, Alien, sem flugmaður geimskipsins. Ridley staðfesti við blaðamann að samvinna hans við hinn svissneska hönnuð Hans Rudolf Giger eða HR Giger komi til með að halda áfram að einhverju leyti, en Giger hannaði ýmsar sjónrænar brellur og fleira í Alien. „Við vorum í góðu sambandi við Giger í mörg ár. Við sýndum honum handritið að myndinni og honum leist vel á það. Hann ætlar að vinna svolítið fyrir mig með þessa mynd og hefur verið að vinna að stóru verkefni sem kemur í myndinni“.

Undanfari þrjátíu árum síðar

Tökur á myndinni hófust í mars á þessu ári og áætlað er að hún komi út í júní árið 2012. Myndinni var upphaflega ætlað að verða nokkurs konar undanfari Alien sem Ridley Scott leikstýrði og kom út árið 1979. Hins vegar þróaðist myndin út í það að verða sjálfstæð mynd um uppruna geimvera. Sjálfur segist Ridley ekki tengja myndina beint við Alien en í lok þriðju senu myndarinnar muni áhorfandi átta sig fljótlega á því að Prometheus á sér smávægilegan skyldleika með henni. „Ég gæti sagt þér hvernig atriðið lýsir sér en það væri synd. En við förum aftur í tímann, ekki áfram“.

Margir velta því eflaust fyrir sér hvers vegna meintur undanfari gömlu Alien sé að skjóta upp kollinum núna, rúmum þrjátíu árum síðar. „Ég hef verið upptekinn við að gera aðrar kvikmyndir,“ sagði leikstjórinn og hló. „Ég hef oft hugsað um það. Ég kunni að meta Black Hawk Down, Gladiator, Hannibal og þessar myndir en vísindaskáldskapurinn er mun víðsýnni. Það er líka fáránlegt að halda að við séum ein í heiminum. En þróun þessarar tegundar kvikmynda varð að stórri sprengju, alveg eins og vampírumyndir, þær urðu að einhverri tískusprengju. Og það sem er stórfurðulegt er að alltaf virðast menn sækja í meira af þessu tagi,“ sagði Ridley og bætti við: „Ekki meira vampírudót“.

Stórar stjörnur til landsins

Leikarar í myndinni eru ekki af verri endanum og ber þá hæst að nefna Noomi Rapace sem tæklaði hlutverk sitt í sænsku trílógíunni um pönkarastúlkuna eftir Stieg Larson með eindæmum vel. Ridley kom fyrst auga á hana í fyrstu mynd trílógíunnar, Stúlkan sem lék sér að eldinum. Hann sagði sjálfan sig hafa gapað yfir henni og vildi fá að vita hver hún væri. „Þetta er stelpan sem mun leika í Prometheus, hugsaði ég með mér. Ég hitti hana í Los Angeles og sá að hún var þessi glæsilega kona og algjör andstæða við pönkara“. Hann var því sannfærður um að þarna væri á ferðinni ekta leikkona. Aðspurður hvort hún sé nokkurskonar arftaki Sigourney Weaver sem fór með aðalhlutverk í Alien vildi hann meina að um væri að ræða mjög ólíkar konur. „Noomi er mun hviklyndari. Hún hefur þennan eldmóð í sér, virkilega ástríðufull.“ Aðrir leikarar eru Charlize Theron, Michael Fassbender, Idris Elba, Guy Pierce, Logan Marshall-Green, Kate Dickie og Sean Harris. Ridley sagði að von væri á nokkrum þeirra til landsins, meðal annars Noomi, Charlize, Michael, Idris og Logan.

Kostnaðurinn leyndarmál

Aðspurður hversu mikið fjármagn fari í kvikmyndina var Ridley ekki gjarn á að gefa upp neina upphæð. En miðað við stór nöfn leikara og það að upptakan hér á landi eigi aðeins eftir að birtast í um 12-15 mínútur af allri kvikmyndinni er ljóst að talsverður kostnaður fari í framleiðslu hennar. Það kostar sitt að ferja allt fylgdarliðið hingað til lands, hvað þá aðeins fyrir svo stuttan tíma í kvikmyndinni. Ridley var sniðugur þegar umræðan fór út í fjármagn og sagði: „Það kemur þér ekki við,“ og hló.

Framleiðendur Prometheus vildu koma á framfæri þakklæti sínu til Rangárþings Eystra og Rangárþings Ytra. Einnig til True North umboðsins, Samtaka ferðaþjónustunnar á Íslandi, iðnaðarráðuneytis, umhverfisráðuneytis, þjóðgarði Vatnajökuls og hóteleigenda.

Ridley Scott hefur komið víða við

Herra Ridley Scott leikstjóri fæddist 30. nóvember árið 1937.

Ridley Scott hefur leikstýrt ófáum myndum í gegnum tíðina. Árið 1979 leikstýrði hann hrollvekjunni Alien, sem er ákveðið barn síns tíma. Ridley Scott hefur einnig leikstýrt myndum á borð við Gladiator, Black Hawk Down, Hannibal, Kingdom of Heaven, American Gangster, Body of Lies og Robin Hood. Hann hefur verið tilnefndur til þrennra Academy-verðlauna fyrir leikstjórn en einnig til Golden Globe-verðlauna og Emmy-verðlauna. Hann hefur þrisvar sinnum unnið til bresku Academy-verðlaunanna fyrir myndina Blade Runner. Hann var sæmdur riddarakrossi árið 2003 og kemur til með að fá stjörnu á götuna „Hollywood Walk of Fame“ í Hollywood.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær