Segja samkomulag um tímabundið vopnahlé í Maríupol

Úkraínskir hermenn fastir í Asovstal-stálverksmiðjunni. Margir eru særðir.
Úkraínskir hermenn fastir í Asovstal-stálverksmiðjunni. Margir eru særðir. AFP

Yfirvöld í Rússlandi segja að samkomulag hafi náðst um vopnahlé í hafnarborginni Maríupol í Úkraínu svo hægt sé að flytja særða frá Asovstal-stálverksmiðjunni þar sem fjöldi Úkraínumanna hefur leitað skjóls síðustu vikur.

„Samkomulag náðist við fulltrúa úkraínska hersins sem situr fastur í Asovstal í Maríupol um að flytja hina særðu,“ sagði í yfirlýsingu rússneska varnarmálaráðuneytisins.

Borgin Maríupol hefur verið undir stöðugum árásum Rússa sem hófust skömmu eftir að stríðið byrjaði í lok febrúar. Lengi voru íbúar fastir í borginni án vatns og rafmagns en erfitt var fyrir borgarbúa að flýja vegna umsáturs rússneska hersins.

Landfræðileg staðsetning Maríupol er afar mikilvæg og hafa Rússar staðið í ströngu við að ná borginni á sitt vald, sem virðist nú hafa tekist.

Á síðustu vikum hefur tekist að flytja hundruð íbúa, sem ekki tókst að flýja fyrr, úr borginni en nokkur hundruð úkraínskra hermanna eru þó enn eftir í stálverksmiðjunni og eru margir þeirra slasaðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert