Leitaði að svörtum fórnarlömbum

Fjöldi fólks minnist fórnarlambanna.
Fjöldi fólks minnist fórnarlambanna. AFP

Árásarmaðurinn sem skaut tíu manns til bana í matvöruverslun í borginni Buffalo í Bandaríkjunum á laugardag leitaði vísvitandi að stað þar sem meirihluti íbúar eru svartir.

Auk þeirra tíu sem létust særðust þrír en árás­armaður­inn er hvít­ur hægri öfgasinni. 

Maðurinn, Payt­on S. Gendron, hafði áður tjáð hatur sitt á svörtum og gyðingum í netheimum.

Gendron keyrði frá heima­bæ sín­um Conklin sem er 322 kíló­metra frá Buffalo. Hann beitti hálf-sjálf­virku skot­vopni við árás­ina sem hann hafði skrifað á slag­orð hvítra hægri-öfga­sinna. 

„Þessi einstaklingur kom hingað í þeim eina tilgangi að taka eins mörg svört líf og hann gat,“ sagði Byron Brown, borgarstjóri Buffalo.

Banda­rísk­ir fjöl­miðlar hafa greint frá því að Gendron hafi skrifað ít­ar­lega „stefnu­lýs­ingu“ og birt á net­inu skömmu fyr­ir árás­ina. Í meint­um texta seg­ir árás­armaður­inn frá áætl­un sinni sem var knú­in af kynþátt­ar­for­dóm­um. 

AFP

Gendron sagðist meðal ann­ars vera „inn­blás­inn“ af of­beld­is­verk­um hvítra hægri-öfga­sinna, m.a. hryðju­verk­un­um í Christchurch á Nýja-Sjálandi árið 2019, þar sem 51 múslimi lést. 

Ríkisstjóri New York Kathy Hochul fordæmdi árásina og einnig samfélagsmiðla sem leyfðu hatri og reiði að grassera án þess að nokkuð væri gert.

Frétt BBC.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert