Bush minntist Powells

Colin Powell ásamt George W. Bush árið 2000.
Colin Powell ásamt George W. Bush árið 2000. AFP

George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er á meðal þeirra sem minnast Colins Powells, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en Powell lést í morgun, 84 ára að aldri.

Bush, sem útnefndi Powell utanríkisráðherra í forsetatíð sinni, segir að Powell hafi verið merkur maður sem hafi veitt fjölmörgum forsetum ráðgjöf. 

„Hann var frábær opinber starfsmaður, sem hófst þegar hann var hermaður á tímum Víetnamstríðsins,“ sagði Bush í yfirlýsingu.

Hann bætti því við að Powell, sem var einnig fyrrverandi ráðgjafi forsetans um þjóðaröryggismál og fyrrverandi yfirmaður bandaríska herráðsins, hefði notið mikillar virðingar, bæði í heimalandinu sem á erlendri grundu. 

Powell lést í dag af völdum Covid-19. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert