Ríkisstarfsmenn í Tékklandi munu fá tvo daga til viðbótar í orlof ef þeir eru bólusettir.
Forsætisráðherra Tékklands, Andrej Babis, sagðist ekki hafa fundið aðra leið sem væri betur til þess fallin að hvetja fólk í bólusetningu. „Sumum þykir þetta ósanngjarnt en mér þykir þetta sanngjarnt,“ segir hann.
Babis hefur hvatt einkafyrritæki til að fara að dæmi yfirvalda. Sjálfur er hann stofandi sjóðsins Agrofert sem hefur eignarhald á fyrirtækjum á sviði matvæla, efna og miðlunar. Þúsundir starfa hjá fyrirtækjunum í eigu sjóðsins.
„Allir góðir starfsmenn og vinnuveitendur vita að þeir þurfa að tryggja öryggi starfsfólks síns. Að öðrum kosti veikist fólkið og lendir í sóttkví. Það mun hafa slæm áhrif á fyrirtækið,“ segir Babis.
Í Tékklandi búa 10,6 milljónir en aðeins 4,7 milljónir hafa þegið bólusetningu.
Þar er sterk hreyfing sem beitir sér gegn bólusetningum og öllum öðrum aðgerðum sem tengjast Covid-19-heimsfaraldrinum. Fyrrverandi forseti Tékklands, Vaclav Klaus, er meðal þeirra sem tala fyrir þeirri hreyfingu.