Telur miklar líkur á endurkjöri Trumps

Mitt Romney, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum.
Mitt Romney, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Bandaríkjunum. AFP

Mitt Rom­ney, re­públi­kani og öld­unga­deild­arþingmaður á Banda­ríkjaþingi, telur að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, eigi „frábæra möguleika“ á því ná endurkjöri. Ummælin lét hann falla þegar hann ræddi við fréttamenn. Hann hafði fyrir um mánuði sagt að líkur Trumps væru í kringum 40%. 

Ummælin komu mörgum á óvart enda hefur Romney verið mjög gagnrýninn á störf forsetans allt frá því að Trump bauð honum ekki stöðu utanríkisráðherra. Þá hefur Romney ekki viljað gefa upp hvern hann hyggst kjósa í forsetakosningunum vestanhafs. 

Að því er fram kemur í könnunum fjölmiðla vestanhafs bendir allt til þess að Joe Biden muni sigra Trump í kosningunum. Hins vegar halda repúblikanar því fram að kannanirnar nú séu rangar líkt og árið 2016 þegar Trump náði kjöri. Benda þeir á að umræddir fjölmiðlar hafi hagsmuni af því að Biden nái kjöri. 

Donald Trump Bandaríkjaforseti og Mitt Romney, þegar sá fyrrnefndi íhugaði …
Donald Trump Bandaríkjaforseti og Mitt Romney, þegar sá fyrrnefndi íhugaði að skipa Romney utanríkisráðherra. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert