Aðgerðir hertar – 75% smita órekjanleg

Angela Merkel, kanslari Þýskalands.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands. AFP

Aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins verða hertar frá og með mánudeginum í Þýskalandi og mega ekki fleiri en tíu koma saman. Skólum og búðum verður áfram haldið opnum en Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hvatti íbúa landsins til að gera allt sitt til að stöðva útbreiðslu veirunnar.

Samkvæmt frétt Guardian munu hertar aðgerðir gilda um allt landið, taka gildi mánudaginn 2. nóvember og gilda út mánuðinn.

Merkel sagði að fjöldi sjúklinga á gjörgæsludeildum hefði tvöfaldast undanfarna tíu daga og að kerfið færi að þolmörkum fljótlega með sama áframhaldi.

Hún bætti því við að ekki væri hægt að rekja 75% smita síðustu daga.

Þjóðverj­um verður gert að hitta ekki fólk frá fleiri en tveim­ur heim­il­um (sínu eig­in meðtöldu), kvik­mynda­hús­um, leik­hús­um og fleiri stöðum verður lokað sem og bör­um og veit­inga­stöðum en þeim þó leyft að af­greiða mat sem fólk getur tekið með sér. Þá verður nudd- og húðflúrsstof­um lokað en hár­greiðslu­stof­um leyft að hafa opið áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert