Kona lést í eldsvoða á heimili fyrir fólk sem glímir við námsörðugleika í London í nótt. Átta íbúum og fjórum starfsmönnum tókst að komast út úr brennandi húsinu áður en slökkvilið kom á vettvang.
Samkvæmt frétt BBC varð eldsins vart klukkan 2:15 í nótt í Connington Crescent, sem er í Chingford. Þegar slökkvilið kom á vettvang voru tvær hæðir og þak hússins logandi. Ekki er vitað hvort konan, sem var úrskurðuð látin á staðnum, hafi verið íbúi eða starfsmaður á heimilinu. Yfir 70 slökkviliðsmenn tóku þátt í slökkvistarfinu en því er ekki enn lokið.
Sadly a woman has been confirmed dead at the Connington Crescent fire in #Chingford. Crews are making steady progress but expect to be tackling
— London Fire Brigade (@LondonFire) April 20, 2018
hotspots for some a number of hours.
More details here https://t.co/DYqVpho5Iv (pic @PaulWood1961 ) pic.twitter.com/gxVHIXWaPX