Tók leigubíl í bankaránið

AFP

Lögreglan í Indiana segir að karlmaður hafi tekið leigubíl til og frá banka sem hann svo rændi. Hann hafi greitt fyrir farið með stolnum peningum.

Derrick Faria er nítján ára. Hann var handtekinn innan við klukkustund eftir að hafa rænt banka í Evansville. Lögreglan segir að Faria hafi rétt gjaldkera í bankanum miða með kröfum sínum um að fá afhenta peninga. Hann hafi ekki sýnt vopn við ránið.

Faria er í varðhaldi og á yfir höfði sér ákæru fyrir ránið sem og fyrir að hafa haft fíkniefni í fórum sínum.

AP-fréttastofan greinir frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert