Bundin við tré og nauðgað af tíu hermönnum

Hermenn stjórnarhersins í Búrma beita kerfisbundnum nauðgunum í hernaði sínum.
Hermenn stjórnarhersins í Búrma beita kerfisbundnum nauðgunum í hernaði sínum. AFP

Stjórnarherinn í Búrma hefur kerfisbundið nauðgað konum og stúlkum úr hópi rohingja í landinu. Þetta kemur fram í ítarlegri fréttaskýringu AP-fréttastofunnar, sem byggð er á viðtölum við fjölda kvenna og stúlkna sem flúið hafa Búrma til Bangladess.

Hér að neðan eru brot úr nokkrum sögum þeirra af ástandinu. Af ótta við að vera drepnar treysta konurnar sér ekki til að koma fram undir fullu nafni.

Þrettán ára

Í fyrra stungu hermenn föður hennar til bana. Í ágúst á þessu ári rændu þeir tveimur yngri bræðrum hennar, bundu þá við tré og börðu þá. Hún reyndi að flýja en hermennirnir náðu henni. Þeir bundu hendur hennar við tré, rifu eyrnalokkana úr eyrum hennar og afklæddu hana.

Hún bað þá að hætta en þeir hræktu á hana.

Svo fóru þeir að nauðga henni einn af öðrum. Þeir voru tíu. Hún missti að lokum meðvitund.

Eldri bróðir hennar bar hana að landamærunum að Búrma. 

Hún sefur illa. Fær stöðugar martraðir.

Nauðgað tvisvar

Hún lá sofandi í rúmi sínu við hlið eiginmannsins í sumar er sjö hermenn ruddust inn. Þeir kefluðu eiginmanninn og tróðu slæðu upp í hann. Þeir rifu fötin utan af henni og hófu að nauðga henni á gólfinu. Á meðan reyndi eiginmaðurinn að öskra. Þá skutu þeir hann og skáru hann svo á háls.

Eftir nauðgunina hentu þeir henni út og kveiktu í húsinu. Tveimur mánuðum seinna uppgötvaði hún að hún væri ólétt. Martröðinni var ekki lokið. 

Í september var hún sofandi í húsi nágranna síns er fimm hermenn brutust inn. Þeir skáru fimm ára dreng sem þar bjó áháls og drápu einnig föður hans. Þeir afklæddu konurnar. Tveir menn nauðguðu henni og þrír nauðguðu nágrannakonunni. 

Eftir að þeir fóru lágu þær báðar á gólfinu í marga daga áður en þeim tókst loks að flýja til Bangladess.

Hún er nú langt gengin með barnið. Þrátt fyrir að það hafi orðið til með þessum hroðalega hætti er hún ákveðin í því að elska það.

Eiginmaðurinn kenndi henni um

Fjölskyldan hafði sest niður saman til að snæða morgunmat í ágúst er hún heyrði óp að utan. Eiginmaðurinn og þrjú elstu börnin hlupu út til að athuga hvað væri í gangi. Hún var komin níu mánuði á leið og tvö barna hennar voru mjög ung. Hún gat ekki flúið.

Hermennirnir ruddust inn. Þeir hentu henni á rúmið. Stálu öllum skartgripunum hennar og peningum sem var að finna í húsinu. Þeir hófu svo að nauðga henni. Einn þeirra hélt hnífsoddi við auga hennar. Þeir voru þrír og nauðguðu henni allir.

Henni fór að blæða og hún var sannfærð um að barnið hennar væri að deyja. Hún missti meðvitund og er hún vaknaði voru hermennirnir farnir. 

Eiginmaðurinn kenndi henni um hvernig fór. Hún hefði átt að berjast.

Fleiri sögur kvenna og stúlkna má lesa hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert