Hæstiréttur Íraks hefur úrskurðað að atkvæðagreiðsla um sjálfstæði sjálfstjórnarhéraðs Kúrda í norðurhluta landsins hafi verið ólögleg.
Í yfirlýsingu segir að Hæstiréttur hafi „komist að þeirri niðurstöðu að atkvæðagreiðsla sem var haldin 25. september 2017 í Kúrdistan í Írak hafi ekki samræmst stjórnarskránni…og þess vegna hefur öllu því sem niðurstöður hennar höfðu í för með sér verið aflýst”.
Sjálfstæði sjálfstjórnarhéraðs Kúrda var samþykkt í atkvæðagreiðslunni.
Á bilinu 25 til 35 milljónir Kúrda búa í heiminum og dreifast þeir að mestu um Tyrkland, Írak, Íran og Sýrland. 5,3 milljónir Kúrda búa í Írak.