Hættir vegna kynlífsmyndbands

Frá borginni Husi í Rúmeníu.
Frá borginni Husi í Rúmeníu. Wikipedia/Nixalsverdrus

Rúmenskur biskup, Corneliu Barladeanu, hefur látið af embætti í kjölfar þess að kynlífsmyndbandi af honum og 17 ára gömlum dreng var dreift á internetinu. Barladeanu var biskup í borginni Husi í austurhluta landsins.

Málið hefur valdið miklum umræðum og hneykslan í Rúmeníu en biskupinn heldur því fram að hann sé saklaus. Hins vegar hafi hann ákveðið að segja af sér til þess að stuðla að friði og sátt um kirkjuna að því er segir í yfirlýsingu.

Fram kemur í frétt AFP að Barladeanu verði áfram munkur en verði hins vegar sviptum öllum trúnaðarstörfum og verður ekki heimilt aa messa. Mál hans er til skoðunar innan kirkjunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert