Ítrekað spurt út í barneignir

Jacinda Ardern.
Jacinda Ardern. AFP

Nýr leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Nýja-Sjálandi, hefur ítrekað verið spurður út í mögulegar barneignir þá tvo daga sem hann hefur gegnt starfi formanns Verkamannaflokksins.

Jacinda Ardern, sem er 37 ára gömul og tók nýverið við sem formaður Verkamannaflokksins, var í sjónvarpsviðtali í dag spurð um hvort barn myndi hafa áhrif á möguleika hennar á að gegna starfi forsætisráðherra.

Ardern, sem hefur gegnt formannsstarfinu í einn dag, hefur þegar verið spurð út í barneignir í þremur viðtölum. Hvort hún ætli sér að eignast börn og hvaða áhrif það geti haft á störf hennar.

Ardern segir að flestar konur sem ná árangri í starfi  standi frammi fyrir þessum spurningum og hún hafi ekki tekið neina ákvörðun um þetta. Hún stefni á líkt og flestar aðrar konur að láta líf sitt ganga upp. En þegar henni var tjáð af sömu sjónvarpsstöð að Nýsjálendingar hefðu rétt á að fá að vita hvort hún ætlaði sér að eignast börn áður en þeir kysu hana sem forsætisráðherra. 

Svaraði Ardern því til að konur eigi rétt á því að vera metnar í starfi af getu sinni ekki hvort þær hafi hug á að eignast börn.

„Það er algjörlega óásættanlegt að árið 2017 þurfi konur að svara spurningum sem þessum á starfsvettvangi sínum,“ sagði hún í viðtalinu í dag. „Það er ákvörðun konunnar hvort hún ætlar að eignast börn eður ei. Það á ekki að segja til fyrirfram um hvort þær fái starf eða ekki.“

Viðbrögð á samfélagsmiðlum létu ekki á sér standa og sögðu margir að karlar fengju ekki sambærilegar spurningar. Það sé komi einfaldlega engum við hvort konur ætli sér að eigast börn eða ekki. Jafnframt er bent á það á samfélagsmiðlum að það sé brot á mannréttindalögum að spyrja slíkra spurninga.

Einn þeirra sem gagnrýndi spurningar í garð Ardern er forsætisráðherra landsins, Bill English, en Ardern vonast til þess að fella hann úr embætti í kosningum sem fram fara 23. september. Hann segir að fólk eigi ekki að þurfa spurningum sem þessum enda séu barneignir einkamál hvers og eins en English er sex barna faðir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert