Foreldrar hins ellefu mánaða gamla Charlie Gard sem þjáist af banvænum hrörnunarsjúkdómi hafa krafist þess að fá að fara með son sinn heim til að deyja. Dómsmál sem þau hafa staðið í síðustu mánuði lauk í gær þegar þau drógu til baka kröfur sínar um að fá að ferðast með drenginn til Bandaríkjanna til tilraunarmeðferðar.
Sögðu læknar foreldrunum að það væri um seinan að bjarga drengnum. Lögfræðingur þeirra Chris Gard og Connie Yates sagði fyrir dómi í gær að „tíminn hefði runnið út“. Sögðu foreldrarnir ákvörðunina vera þá erfiðustu sem þau hefðu tekið, en vegna niðurstaðna úr rannsóknum myndu þau nú draga kröfur sínar til baka og leyfa læknum að taka öndunarvél sonar síns úr sambandi.
Yates sneri aftur í yfirrétt í Bretlandi í dag þar sem hún fór fram á að fá að fara heim með son sinn, og leyfa honum að deyja þar. Lögfræðingur foreldranna hefur sagt Great Ormond Street-spítalann þar sem Charlie hefur dvalið, hindra foreldrana frá því að taka drenginn heim.
Dómarinn í málinu sagði ástæður þess vera þær að öndunarvélin kæmist ekki inn um dyrnar á heimili parsins. Forsvarsmenn spítalans segja Gard og Yates ekki vera tilbúin til málamiðlana.
Foreldrarnir mættu fyrir yfirrétt í Bretlandi í gær, þar sem til stóð að leggja fram vitnisburð frá bandarískum taugalækni sem heimsótti Charlie á Great Ormond Street-spítalann á dögunum. Niðurstaða læknisins var ljós á föstudag, en hann sagði að engin von væri fyrir drenginn. Ákváðu foreldrarnir því að draga til baka kröfur sínar, og leyfa syni sínum að deyja.
Foreldrarnir hafa barist fyrir því að drengurinn fái að lifa, en vegna sjúkdóms hans getur hann ekki opnað augun, borðað eða hreyft sig svo neinu nemi sjálfur.
Læknar á spítalanum hafa farið fram á að taka öndunarvél sem heldur drengnum á lífi úr sambandi, og hafa dómarar á öllum dómstigum í Bretlandi og fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu verið sammála því.
„Þetta er það erfiðasta sem við höfum gert. Eftir nýjustu niðurstöður höfum við ákveðið að leyfa syni okkar að deyja,“ sagði Yates fyrir dómi í gær. Þá gagnrýndi hún ferlið síðustu mánuði og sagði miklum tíma hafa verið sóað. Ef hann hefði farið fyrr í meðferðina hefði hann átt möguleika.