Rændu hraðbanka með Trump-grímur

Þjófarnir brugðu á það ráð að hylja andlit sín með …
Þjófarnir brugðu á það ráð að hylja andlit sín með grímum sem líktust Bandaríkjaforseta. Maðurinn á myndinni er Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AFP

Lögreglan á Ítalíu hefur handtekið tvo þjófa í bænum Tórínó fyrir að ræna fjölda hraðbanka í bænum. Á meðfylgjandi myndskeiði, sem BBC birtir á Twitter-reikningi sínum, má sjá hvernig þjófarnir láta til skara skríða og sprengja upp hraðbankann.

Annar mannanna breiðir yfir öryggismyndavél við hraðbankann en þar að auki brugðu þjófarnir á það ráð að hylja andlit sín með grímum sem líkjast Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Sem fyrr segir hefur lögregla handtekið þjófana tvo sem sagðir eru bræður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert