Rudd svarar ummælum Merkel

Amber Rudd, innanríkisráðherra Bretlands.
Amber Rudd, innanríkisráðherra Bretlands. AFP

Amber Rudd, innanríkisráðherra Bretlands, fullyrðir að bresk stjórnvöld vilji viðhalda „innilegu og sérstöku samstarfi“ við Evrópusambandið að lokinni brottgöngu landsins þaðan.

Angela Merkel Þýskalandskanslari sagði í gær að Evrópa þyrfti nú að berjast fyrir eigin framtíð. Álfan gæti ekki leng­ur reitt sig full­kom­lega á Banda­rík­in og Bret­land sem banda­menn, í kjöl­far kjörs Don­alds Trump í embætti Banda­ríkja­for­seta og út­göngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. 

Rudd svarar þessum ummælum í útvarpsviðtali í dag og segir Breta vilja halda áfram náinni samvinnu við ESB, samkvæmt umfjöllun BBC.

„Á sama tíma og við hefjum viðræður um útgöngu úr ESB, þá munum við geta fullvissað Þýskaland og önnur Evrópulönd um að við munum vera sterkur bandamaður þeirra í varnar- og öryggismálum og vonandi í viðskiptum,“ sagði Rudd.

„Viðræðurnar verða einar þær mikilvægustu sem landið hefur tekið þátt í í marga áratugi. Það skiptir öllu máli að við gerum þetta rétt og við vanmetum ekki hversu erfitt það verður.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert