Kölluðu á hjálp án árangurs

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. AFP

Þrír menn hafa verið handteknir í Uttar Pradesh-ríki á Indlandi eftir að myndskeið sem sýnir þá ráðast á tvær konur var birt á netinu. Mennirnir sjást káfa á konunum og hrinda þeim um hábjartan dag og enginn kemur þeim til aðstoðar heldur lítur fólk undan þegar þær kalla á hjálp.

Einhverjir stóðu hlæjandi og horfðu á menninga ráðast á konurnar og draga upp síma sína til þess að taka atvikið upp. Alls voru árásarmennirnir fjórir talsins og segist lögregla vita hver sá fjórði er og hann verði handtekinn fljótlega. 

Önnur konan sem varð fyrir árásinni segir að þær hafi grátbeðið mennina um að hætta og kallað eftir hjálp. „En það kom enginn. Þess í stað bættist í hóp karlanna sem tóku þátt í að áreita okkur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert