Magasin rýmt í skyndi

Magasin stendur við Kongens Nytorv.
Magasin stendur við Kongens Nytorv. Af Wikipedia

Verslunarmiðstöðin Magasin du Nord við Kóngsins Nýtorg (Kongens Nytorv) í Kaupmannahöfn hefur verið rýmd vegna grunsamlegs atviks sem lögreglan er nú að rannsaka. Eftir að lögreglan fékk tilkynningu um málið var öllum gert að yfirgefa húsnæðið, bæði gestum og starfsmönnum.

Lögreglan vill ekki segja hvað nákvæmlega er verið að rannsaka en í frétt Ekstra Bladet segir að sprengjuhótun hafi borist. 

Lestarstöðinni við torgið var lokað um tíma vegna aðgerða lögreglu.

Frétt Danska ríkisútvarpsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert