Rýma verslunarmiðstöð í Manchester

Fólk sést hér yfirgefa Arndale verslunarmiðstöðina sem var rýmd fyrir …
Fólk sést hér yfirgefa Arndale verslunarmiðstöðina sem var rýmd fyrir skemmstu. AFP

Arndale-verslunarmiðstöðin í Manchester var rýmd nú fyrir skemmstu og hefur Reuters fréttastofan eftir vitnum að þau hafi heyrt „háan hvell“. Segir fréttastofan stóra hópa fólks hafa hlaupið á brott frá verslunarmiðstöðinni.

„Fólk kemur út hlaupandi og helst í hendur,“ hefur Reuters eftir ljósmyndara á vettvangi.

Arndale verslunarmiðstöðin er í miðbæ Manchester, líkt og Manchester Arena tónleikahöllin þar sem 22 létust og  59 slösuðust í sjálfsvígsárás í gærkvöldi

Lögregla í Manchester hefur ekki tjáð sig um rýmingu verslunarmiðstöðvarinnar í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert