Árásarmaðurinn var 22 ára

Vopnaðir lögreglumenn sjást nú á götum Manchester í námunda við …
Vopnaðir lögreglumenn sjást nú á götum Manchester í námunda við tónleikahöllina. AFP

Maðurinn sem framdi hryðjuverkaárásina í Manchester í gærkvöldi hét Salman Abedi og var 22 ára gamall. Þetta hefur Telegraph eftir bandarískum embættismönnum.

Abedi var fæddur í Manchester árið 1994 og var sonur líbískra flóttamanna sem komu til Bretlands til að flýja stjórn Gaddafi. Abedi var einn fjögurra systkina og átti hann tvo bræður og eina systur. Telegraph segir óstaðfestar heimildir herma að fjölskylda hans hafi nýverið snúið aftur til Líbíu.

Um var að ræða sjálfsmorðssprengjuárás og hafa hryðjuverkasamtökin Ríki íslams lýst yfir ábyrgð á ódæðinu sem varð 22 að bana. Þá slösuðust 59 en árásin var gerð á Manchester Arena-tónleikahöllina við lok tónleika bandarísku söngkonunnar Ariana Grande.

Höfðu áður haft afskipti af Abedi

Lögregla hafði áður haft afskipti af Abedi að því er fram kemur í frétt Guardian

Th­eresa May, for­sæt­is­ráðherra Bret­lands, tilkynnti á fundi í morgun að breska leyniþjónustan teldi sig vita hver stæði að baki árásinni. Lögreglustjórinn Ian Hopkins hefur nú staðfest að Abedi hafi verið hinn grunaði, en þar sem ekki sé formlega búið að bera kennsl á hann óskaði hann eftir því að tjá sig ekki nánar um málið. 

Sagði hann forgangsmál núna að rannsaka hvort Abedi hafi verið einn að verki eða hvort hann hafi verið hluti af stærra neti. Rannsókn á málinu er nú í fullum gangi hjá yfirvöldum í Bretlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert