Svisslendingurinn Ueli Steck, sem þótti einn besti fjallamaður heims, lét lífið á hæsta fjalli heims, Everest, í morgun.
„Hann lenti í slysi í vesturhlíð Nuptse og lést. Það lítur allt út fyrir að hann hafi runnið,“ sagði Ang Tsering Sherpa, forseti Fjallgöngusambands Nepals, við AFP-fréttastofuna.
Steck, sem var fertugur, ætlaði að klífa á tind Everest í maí. Hann ætlaði að fara aðra leið á tindinn en tíðkast við klifur þangað.
„Hann rann til um þúsund metra frá grunnbúðum tvö snemma í morgun. Aðrir sem voru staddir á fjallinu sáu hann og kölluðu eftir aðstoð,“ sagði leiðsögumaðurinn Dinesh Bhattarai.
Svisslendingurinn var frægur fyrir að fara ótroðnar slóðir í fjallaleiðöngrum sínum og fékk viðurnefnið „svissneska vélin“ vegna afreka sinna í Ölpunum.
Steck komst í heimsfréttirnar fyrir fjórum árum þegar hann og tveir aðrir evrópskir fjallgöngumenn lentu í átökum við nepalska leiðsögumenn. Evrópubúarnir voru sagðir hafa hundsað tilmæli heimamanna og stofnað hópi þeirra í hættu.
Atvikið varð til þess að gjá myndaðist á milli evrópskra fjallgöngumanna og leiðsögumanna frá Nepal. Steck varð reiður vegna þessa og sagðist aldrei ætla að koma aftur á Everest. Hann sneri hins vegar aftur nokkrum mánuðum síðar.