Missti eitt hjól og rann út af

Neistaflug varð er vélin lenti á aðeins tveimur hjólum á …
Neistaflug varð er vélin lenti á aðeins tveimur hjólum á flugbrautinni. Skjáskot/CNN

Skelkaðir farþegar hlupu frá borði lítillar flugvélar sem misst hafði hjól og varð að nauðlenda á flugvelli í Sarasota í Flórída. Vélin hafði misst hjólið í flugtaki í Belís.

Er hún lenti mátti sjá eldglæringar og neista koma frá lendingarbúnaðinum er hann straukst hjóllaus eftir flugbrautinni.

Fjórir voru um borð í vélinni. Engan sakaði. Verið er að rannsaka hvernig á því stóð að hjólið datt undan í flugtakinu.

Frétt CNN.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert