Segir Macron vera hrokafullan

Emmanuel Macron fangaði úrslitunum á veitingastaðnum La Rotonde í gærkvöldi. …
Emmanuel Macron fangaði úrslitunum á veitingastaðnum La Rotonde í gærkvöldi. Aðstoðarmaður Marine Le Pen telur það hámark sýndarmennskunnar. AFP

Atkvæðatalningu í fyrri umferð frönsku forsetakosninganna var ekki fyrr lokið, fyrr en kosningabaráttan fyrir síðari umferðina var hafin. Flest atkvæði fengu miðjumaður­inn Emmanuel Macron, sem fékk 23,75% atkvæða og Marine Le Pen, full­trúi Þjóðern­is­flokks­ins, fékk 21,53.

„Emmanuel er ekki föðurlandsvinur. Hann einkavæddi fyrirtæki í eigu ríkisins. Hann gagnrýndi franska menningu,“ sagði Florian Philippot, einn helstu ráðgjafa Le Pen í samtali við BFM sjónvarpsstöðina.

Philippot sagði Macron vera „hrokafullan“ og að hann hefði, í þakkaræðu sinni í gærkvöldi, talað eins og „hann hefði þegar unnið forsetakosningarnar.“

„Það var vanvirðing við frönsku þjóðina,“ sagði Phillipot og sagði sigurkvöldverð Macrons á hinum þekkta veitingastað La Rotonde hafa jafngilt „bling-bling“ sýndarmennsku.

Skoðanakann­an­ir benda til þess að Macron verði næsti for­seti Frakk­lands og  hafa fjöl­marg­ir stjórn­mála­menn, bæði vinstri og hægri menn, þegar lýst yfir stuðningi við Macron í seinni um­ferðinni sem fram fer 7. maí. 

Skoðanakönnun Harris bendir til þess að Macron fái 64% atkvæða í seinni umferðinni, en Le Pen 365 og skoðanakönnun Ipsos/Sopra Steria gaf svipaða niðurstöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert