Tuttugu börn létust í rútuslysi

mbl.is/Kristinn

Að minnsta kosti tuttugu börn létust í rútuslysi í Suður-Afríku í dag. Börnin voru í skólaferðalagi er slysið átti sér stað.

Í frétt AFP-fréttastofunnar segir að slysið hafi orðið skammt frá höfuðborginni Pretoríu. Enn er hlúð að slösuðum á vettvangi.

„Það er staðfest að tuttugu börn létust,“ segir Russel Meiring, talsmaður björgunarsveita á vettvangi, við AFP-fréttastofuna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert