Framlag Íslands hefur fallið um eitt til þrjú sæti í spám veðbanka eftir að flutningi allra laganna á sviðinu í Tórínó lauk í kvöld.
Á vefnum Eurovisionworld eru veðmálalíkur veðbanka teknar saman og samkvæmt þeim er Systrum nú spáð 21.-22. sæti.
Fyrr í kvöld hafði Ísland flakkað á milli 19. og 20. sætis, en í gærkvöldi sátum við sem fastast í 19. sæti.
Nú er að sjá hvort Evrópa er á sama máli og veðbankarnir, á sama tíma og atkvæði verða talin upp úr kjörkössunum hér heima.