Sonja Sif Þórólfsdóttir
skrifar frá Tórínó
Belgía, Tékkland, Aserbaísjan, Tékkland, Pólland, Finnland, Eistland, Ástralía, Svíþjóð, Rúmenía og Serbía komust áfram í seinni undankeppni Eurovision sem fór fram í kvöld. Keppendur landanna muna því koma fram á laugardagskvöldið þegar aðalkeppnin fer fram.
Ísland komst áfram á þriðjudag og verður á meðal þeirra 25 landa sem keppa um glerhljóðnemann. Auk Íslands komust Sviss, Armenía, Litháen, Portúgal, Noregur, Grikkland, Úkraína, Moldóvía og Holland.
Keppendur þessa 20 landa etja svo kappi við stóru löndin fimm; Ítalíu, Spán, Þýskaland, Bretland og Frakkland.
Eurovision söngvakeppnin fer fram á laugardag og hefst keppnin klukkan 19. Blaðamaður mbl.is er staddur í Tórínó og mun flytja lesendum fréttir beint.