Íslenska kvikmyndin Skjálfti (e. Quake) eftir Tinnu Hrafnsdóttur verður sýnd í Bandaríkjunum, Bretlandi og Svíþjóð, en dreifingaraðilinn Juno Films hefur keypt sýningarréttinn fyrir Bretland og Bandaríkin, en Njuta Films fyrir Svíþjóð.
Kvikmyndin var frumsýnd á Íslandi þann 29. mars.
Þá mun framleiðslu, dreifingar og umboðsfyrirtækið Alief sýna myndina á kvikmyndahátíðinni í Cannes, Marché du Film.
Myndin var sýnd í Bandaríkjunum á kvikmyndahátíð í Santa Barbara í byrjun mars við góðar undirtektir.
„Skjálfti er spennandi dulúðstryllir sem snýst meistaralega í átt að hughreinsandi og tilfinningalega fullnægjandi endi,“ segir Elizabeth Sheldon, framkvæmdastjóri Juno Films í viðtali við Variety.
Áætlað er að myndin verði sýnd í útvöldum kvikmyndahúsum við árslok 2022.
Njuta films, ætla sér að hefja sýningar á kvikmyndinni í haust eða byrjun vetrar, auk þess að vera í samvinnu við samtök og fyrirtæki sem fást við sambærileg geðræn vandamál og er gefin vettvangur í myndinni.
Framkvæmdastjóri Njuta Films, Nicolas Debot, hrósar Skjálfta hástert og sérstaklega Anítu Briem, fyrir sitt hlutverk. Að auki kvaðst hann hrifinn af boðskap myndarinnar.