Ný plata frá Dr. Gunna

Dr. Gunni ásamt bandingjum sínum.
Dr. Gunni ásamt bandingjum sínum.

Platan Nei, ókei með hljómsveitinni Dr. Gunna er komin út á Spotify. 

Nei, ókei er 12 laga LP-plata, sú fyrsta með hljómsveitinni Dr. Gunna síðan prjál-útgáfan Í sjoppu kom út 2015, og fyrsta alvöruplatan síðan Stóri hvellur kom út 2003. Platan er komin út á Spotify en kemur einnig út á vínil í nóvember. Auk Gunnars Hjálmarssonar skipa Guðmundur Birgir Halldórsson, Grímur Atlason og Kristján Freyr Halldórsson sveitina.

Hljómsveitin mun koma fram á útgáfutónleikum hinn 21. október á Húrra þar sem platan verður leikin í heild sinni ásamt eldri lögum. Jón Gnarr & Hamfarabandið sér um að hita mannskapinn upp ásamt Elizu Newman. Miðasala er á tix.is. Dr. Gunni kemur einnig fram á Eyrarrokki á Akureyri 22. október.

Á Nei, ókei er að finna lög á borð við Aumingi með Bónuspoka, Mér finnst ég ætti að gráta meira og Fuglahræðan í Hvassaleiti. Meðal gestasöngvara er Eiríkur Hauksson.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler