Hjá Everest rétt fyrir faraldur

Helga Hvanndal, heimspekingur, landvörður og verðandi umhverfis- og auðlindafræðingur, er mikill heimsborgari og hefur ferðast víða í alls kyns ævintýraferðir og fjallgöngur. Síðasta ferðalag sem hún fór í fyrir heimsfaraldur var í janúarmánuði 2020. Þá heimsótti hún Nepal og eyddi þar tveimur mánuðum.

Upprunalega snerist ferðalagið um að sækja alþjóðlega landvarðaráðstefnu sem er haldin þriðja hvert ár. Hópur íslenskra landvarða fór saman og var ráðstefnan, sem stóð yfir í viku, haldin í þjóðgarði í Nepal. Yfir 600 landverðir hvaðanæva úr heiminum komu þar saman og segir Helga það hafa verið mjög áhugaverða upplifun.

„Þar var fólk úr sömu starfstétt sem er að gera rosalega mismunandi hluti. Sumir eru að berjast við veiðiþjófa eða skógarelda, alls konar sem er svo langt frá því sem við erum að gera hér á Íslandi. Við erum samt öll að vinna að sama heildarmarkmiði, í þágu náttúruverndar.“

Everest-fjall er hæsta fjall í heimi. Ríflega fjórum sinnum hærra …
Everest-fjall er hæsta fjall í heimi. Ríflega fjórum sinnum hærra en Hvannadalshnjúkur, sem er hæsta fjall Íslands (2.110 metrar). AFP

Eftir ráðstefnuna nýtti Helga tækifærið til að fara í nokkrar fjallgöngur sem hún segir að hafi verið algjör draumur. Íslenski hópurinn fór meðal annars í grunnbúðir Everest. „Það er líklega eitt það magnaðasta sem ég hef gert, að vera þarna í Himalajafjöllunum. Þetta var ótrúlega erfitt líkamlega og andlega og reynir á, þar sem aðstæður eru mjög frumstæðar.“

Helga Hvann­dal er 28 ára göm­ul Reykja­vík­ur­mær sem hef­ur þó eytt dágóðum tíma á afskekkt­um stöðum. Hún er með BA-gráðu í heim­speki og stund­ar nú masters­nám í um­hverf­is- og auðlinda­fræði, en und­an­far­in fimm ár hef­ur Helga starfað sem land­vörður. Þar á meðal í Dyr­hóla­ey þar sem hún eyddi mikl­um tíma ein­söm­ul, sem eini íbúi eyj­unn­ar.

Hér að ofan má sjá brot úr viðtal­inu en Dag­mál eru aðgengi­leg áskrif­end­um Morg­un­blaðsins hér. Einnig er hægt að kaupa vikupassa hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler