Rúrik afhenti tæpar tvær milljónir

Rúrik Gíslasyni og Ragnari Schram á Kjarvalsstöðum.
Rúrik Gíslasyni og Ragnari Schram á Kjarvalsstöðum. Ljósmynd/Magnús Óli Sigurðsson

Knattspyrnuhetjan Rúrik Gíslason afhenti SOS Barnaþorpunum styrk að upphæð 1,7 milljón króna í dag á Kjarvalsstöðum en upphæðin rennur til verkefnis í Tógó. Fjárhæðin er ágóði af sölu á SOS góðgerðarbolnum sem var hannaður af Rúrik Gíslasyni í samstarfi við 66°Norður. Bolurinn var seldur í verslunum 66°Norður í desember síðastliðnum.

„Ég er mjög þakklátur að geta lagt mitt af mörkum og stutt þetta frábæra verkefni SOS barnaþorpa í Tógó. Það hefur verið ánægjulegt að vinna með 66°Norður að hönnun og framleiðslu góðgerðarbolsins. Þetta hefur verið ánægjuleg vegferð og mín leið að styðja við félagið sem velgjörðarsendiherra,“ segir Rúrik Gíslason.

Styrktarupphæðin rennur til verkefnis í Tógó sem miðar að því að draga úr kynferðislegri misnotkun á börnum þar í landi. Verkefnið hefur verið starfrækt frá því í mars á síðastliðnu ári og hefur þegar náð miklum árangri. 56% stúlkna í Tógó eru fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar og 17,3% stúlkna verða barnshafandi fyrir 18 ára aldur. Ennfremur eru barnagiftingar stúlkna og brottfall unglingsstúlkna úr grunnskólum vegna þungunar aðkallandi vandamál.

Þetta er annað árið í röð sem 66°Norður og Rúrik styðja við starfsemi SOS Barnaþorpanna og hafa samtals stutt félagið um 3,3 milljónir króna. SOS Barnaþorpin eru stærstu óháðu hjálparsamtök heims sem einblína á að veita munaðarlausum og yfirgefnum börnum staðgengil fyrir þá fjölskyldu sem þau hafa misst. Samtökin sinna einnig mikilvægum samfélagsverkefnum til stuðnings börnum víðs vegar um heim.

„Við erum Rúrik og 66°Norður innilega þakklát fyrir þetta frumkvæði og ánægjulega samstarf. Það gleður okkur mjög að þessi góði bolur hafi selst upp annað árið í röð. Það þykir okkur ekki aðeins til merkis um vel heppnaða hönnun heldur einnig að Íslendingar láti sig varða aðstæður bágstaddra barna. Afraksturinn af sölu bolsins mun sannarlega koma að góðum fyrir okkar þarfa verkefni í Tógó,“ segir Ragnar Schram, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson