Daði Freyr tekur þátt í Eurovision 2021

Daða Frey mun taka þátt í Eurovision 2021.
Daða Frey mun taka þátt í Eurovision 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tónlistarmaðurinn Daði Freyr Pétursson keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision-söngvakeppninni í Rotterdam í maí. RÚV leitaði til Daða Freys sem samþykkti að semja lag í keppnina.

Lagið Think About Things með Daða og Gagnamagninu vann Söngvakeppnina 2020 en vegna Covid-19 var hætt við Eurovision sem átti að fara fram í Rotterdam. Lagið sló þó heldur betur í gegn en það hefur nú þegar þetta er skrifað verið spilað tæplega 55 milljón sinnum á Spotify. Lagið vann áhorfendaverðlaunin í mörgum löndum Evrópu, m.a. í öllum hinum norrænu löndunum. 

Það eina rétta í stöðunni

Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV er ánægður með að Daði Freyr hafi þekkst boðið um að taka aftur þátt í keppninni. „Daði vann Söngvakeppnina 2020 með yfirburðum og viðtökurnar við íslenska framlaginu hafa aldrei verið svona góðar. Við erum því afar ánægð og stolt af því að geta sent þennan frábæra tónlistarmann og hans fólk út eins og til stóð að gera síðast. Auðvitað þurfti að skoða margt þegar þessi ákvörðun var tekin en eftir mikla umhugsun fannst okkur þetta það eina rétta í stöðunni, ekki síst í ljósi hinnar fordæmalausu stöðu sem upp kom í ár að engin Eurovision-keppni hafi verið haldin í fyrsta skipti í sögunni. Okkur fannst það bæði rétt og sanngjarnt,“ segir Skarphéðinn og bætir við: „Við teljum að þjóðin vilji eindregið að Daði og Gagnamagnið keppi fyrir okkar hönd í þessari keppni. Auk þess er óvissan svo mikil í dag að það er ekki einu sinni víst að við getum haldið Söngvakeppni í febrúar með almennilegum hætti.“ 

Mest gaman að vinna

Daði Freyr er afar spenntur fyrir því að fá að standa á Eurovision-sviðinu: „Ég er mjög spenntur fyrir þessu. Ástæðan fyrir því að ég keppti í Söngvakeppninni 2020 var til að prófa að fara með Gagnamagnskrökkunum að upplifa Eurovision innan frá. Við stefndum alltaf að því að sjá hversu langt við gætum komist í keppninni og það verður eins á næsta ári. Allt Gagnamagnið verður með. Aðalatriðið í þessu er að það verði gaman en ég held að það sé mest gaman að vinna. Nú vona ég bara að það verði haldin alvörukeppni,“ segir hann. En er hann búinn að semja lagið? „Ég er kominn með nokkrar pælingar varðandi lagið en ekkert sem er ákveðið. Ég veit reyndar hvernig tónlistarmyndbandið verður og er með nokkur lykilatriði sem þurfa að koma fram í sviðsetningunni, svo ég mun semja lagið í kringum það. Ég mun reyna að semja lag sem passar við atriðið en ekki öfugt, Júró er alveg sérdæmi. En þetta verður stuðlag, það er alveg á hreinu. Allt sem er gaman!“ 

Vegleg tónlistardagskrá í undirbúningi

Það er því ljóst að það verður engin Söngvakeppni á næsta ári. Keppnin hefur verið með allra stærstu sjónvarpsviðburðum landsins síðustu ár en Skarphéðinn biður aðdáendur keppninnar að örvænta ekki. „Við verðum að sjálfsögðu með öfluga tónlistardagskrá í febrúar og mars, á þeim tíma sem Söngvakeppnin hefði farið fram og sú dagskrá mun að einhverju leyti tengjast Söngvakeppninni og Eurovision,“ segir hann. Þegar er hafinn undirbúningur að veglegri dagskrá þar sem tónlist og skemmtun verða í öndvegi.

Eurovision-söngvakeppnin verður í Rotterdam 18., 20. og 22. maí 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson