Eliza Reid forsetafrú segir eiginmann sinn, Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, enn jafn skemmtilegan, indælan og hugulsaman og þegar hún hitti hann fyrst fyrir meira en 20 árum.
Guðni fagnar 52 ára afmæli sínu í dag, 26. júní.
„Ég er svo stolt af honum sem manneskju, eiginmanni, vini, sagnfræðingi og auðvitað forseta. Guðni er lítið fyrir gjafir og veislustand en ég veit að hann kynni vel að meta ef fólk legði sig sérstaklega fram í dag – og alla daga – að vera gott hvert við annað,“ segir Eliza í afmæliskveðju sinni til eiginmannsins í dag.
Eliza endar kveðju sína á að minna fólk á að kjósa á morgun, en Guðni sækist eftir endurkjöri til forseta Íslands.
[English follows] Maðurinn minn er 52 ára gamall í dag. Hann er alveg eins skemmtilegur, indæll, hugulsamur og klár...
Posted by Eliza Reid on Friday, 26 June 2020