Heimilislaus eltihrellti Styles

Þegar Styles varð fyrst var við unga manninn utan við …
Þegar Styles varð fyrst var við unga manninn utan við heimili sitt í London í mars kenndi hann í brjósti um hann og keypti fyrir hann mat. AFP

Heimilislaus maður hefur verið fundinn sekur um að hafa setið um Harry Styles þannig að söngvaranum fannst öryggi sínu ógnað eftir að sá síðarnefndi reyndi að rétta honum hjálparhönd.

Þegar Styles varð fyrst var við unga manninn utan við heimili sitt í London í mars kenndi hann í brjósti um hann og keypti fyrir hann mat.

Hann átti eftir að sjá eftir ákvörðuninni og segist hafa læst svefnherbergishurð sinni á hverri nóttu eftir að maðurinn sat um heimili hans á degi hverjum og skildi eftir skilaboð og peninga í póstkassa söngvarans.

Maðurinn neitaði sök og sagðist aldrei hafa ætlað að hrella Styles. Hann hafi einungis fengið bakþanka og viljað þiggja peninginn sem söngvarinn hafði boðið honum.

„Ég ber engar tilfinningar til hans. Ég er ekki ástfanginn af honum,“ sagði maðurinn dómara.

Dómur verður kveðinn upp yfir manninum 21. október.

Frétt BBC

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant