Leikkonan Hera Hilmarsdóttir og leikarinn Christian Camargo hafa verið valin til þess að leika á móti Jason Momoa, sem þekktastur er fyrir leik í Game of Thrones, í nýrri þáttaröð Apple, See. Fjallað er um þetta í fjölmiðlum í dag en Deadline greindi fyrst frá.
Framleiðandinn er Steven Knight og leikstjórinn er Francis Lawrence sem meðal annars leikstýrði Hungurleikunum. See gerist í framtíðinni og mun Hera fara með hlutverk Maghra.
Hera fór meðal annars með hlutverk Vanessu í DaVinci’s Demons og mun næst koma fram í Mortal Engines, kvikmynd sem fellur í flokk vísindaskáldskapar og er af dýrustu gerð enda framleidd af leikstjóranum Peter Jackson, þeim sama og gerði kvikmyndirnar upp úr Hringadróttinssögu og Hobbitanum.