Kvikmyndin „Lof mér að falla“ til Toronto

Kvikmyndin Lof mér að falla verður frumsýnd hér á landi …
Kvikmyndin Lof mér að falla verður frumsýnd hér á landi 7. september. Ljósmynd/Aðsend

Lof mér að falla, nýjasta kvikmynd Baldvins Z, hefur verið valin á Kvikmyndahátíðina í Toronto sem fram fer 6.-16. september.

Myndin, sem verður frumsýnd hér á landi 7. september, segir frá hinni 15 ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stellu og þróar Magnea sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. 12 árum síðar liggja leiðir þeirra óvænt saman og verður uppgjör á milli þeirra óumflýjanlegt.

Hand­rit bíó­mynd­ar­inn­ar er skrifað af leik­stjór­an­um Bald­vin Z og Birgi Erni Stein­ars­syni eða Bigga í Maus eins og hann er oft­ast kallaður. Þetta er ekki þeirra fyrsta sam­starf því sam­an gerðu þeir hand­ritið að Von­ar­stræti sem fékk mikið lof þegar hún kom út.

Með aðalhlutverk í Lof mér að falla eru leikkonurnar Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir en leikarinn Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Í myndinni fara einnig með hlutverk Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson.

Hér má sjá stiklu úr myndinni:

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant