Khloé og Kendall í paraferð í Mexíkó

Þær systur eru í Mexíkó.
Þær systur eru í Mexíkó. skjáskot/Instagram

Systurnar Khloé Kardashian og Kendall Jenner sáust ásamt kærustum sínum, körfuknattleiksmönnunum Tristan Thompson og Ben Simmons, í Mexíkó á dögunum. Jenner og Simmons hafa verið að hittast síðan í byrjun sumars en hafa haldið sambandi sínu utan sviðsljóssins. Hann hefur þó verið viðstaddur nokkra fjölskylduviðburði.

Khloé Kardashian og Tristan Thompson eiga dótturina True saman.
Khloé Kardashian og Tristan Thompson eiga dótturina True saman. skjáskot/Instagram

Kardashian og Thompson hafa ekki siglt lygnan sjó síðan þau eignuðust sitt fyrsta barn saman í apríl. Myndir af körfuknattleiksmanninum kyssa aðrar konur náðust skömmu fyrir fæðingu dóttur þeirra. Þau hafa þó verið að vinna í sínum málum og flutti hann með henni til Los Angeles í sumar. 

Ben Simmons leikur með Philadelphia 76ers.
Ben Simmons leikur með Philadelphia 76ers. AFP

Þeir Thompson og Simmons leika báðir í NBA-deildinni í Bandaríkjunum. Thompson leikur með Cleveland Cavaliers en Simmons leikur með Philadelphia 76ers. Leiktíðin í NBA hefst ekki fyrr en í október svo þeir hafa nægan tíma til að njóta lífsins í Mexíkó.

i love clouds

A post shared by Kendall (@kendalljenner) on Aug 12, 2018 at 7:04pm PDT

📸 @kendalljenner

A post shared by Khloé (@khloekardashian) on Aug 12, 2018 at 8:42pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson