Kanye myndi „negla“ mágkonur sínar

Kanye West á fjórar mágkonur sem hann væri til í …
Kanye West á fjórar mágkonur sem hann væri til í að negla. AFP

Rapparinn og fjöllistamaðurinn Kanye West segir í nýju lagi sínu að hann myndi „negla“ allar fjórar mágkonur sínar. Kanye West er kvæntur raunveruleikaþáttastjörnunni Kim Kardashian West og eru því mágkonur hans ekki af verri endanum, Khloé, Kourtney, Kendall og Kylie. 

Kanye gaf út lagið á Twitter á laugardainn og ber nafnið „Sick Thoughts“ eða „sjúkar hugsanir.“ Í textanum segir Kanye „Sjúkar hugsanir? Áttu mágkonu sem þig langar að negla? Ég á fjórar.“

Kanye hefur verið ansi opinskár um kynlífshugsanir sínar upp á síðkastið en í viðtali við Jimmy Kimmel sagði hann frá því að hann horfði á klám. Rapparinn sagði að dætur hans tvær og eiginkona hans stoppi hann ekki í að horfa á klám. Kimmel spurði hann hvernig klám hann horfir á og svaraði Kanye því með þessum orðum „Mikið af svörtu og hvítu, augljóslega.“

Kim ásamt þremur systrum sínum, Kylie, Khloé og Kendall.
Kim ásamt þremur systrum sínum, Kylie, Khloé og Kendall. skjáskot/Instagram/khloekardashian
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson