Rúrik Gíslason landsliðsmaður í knattspyrnu er kominn með milljón fylgjendur á samfélagsmiðlinum Instagram. Þessum áfanga náði Rúrik í kvöld, en þegar HM í Rússlandi byrjaði var knattspyrnukappinn einungis með um 30 þúsund fylgjendur.
Þessar ótrúlegu vinsældir Rúriks á Instagram má rekja til leiksins gegn Argentínu, en eftir að hann kom inn á sem varamaður gegn Messi og félögum byrjaði fylgjendafjöldi hans að aukast á miklum hraða og nú viku seinna er hann kominn upp í eina milljón.
Einhverjir hafa eflaust grætt á því, en erlendar veðmálasíður tóku eftir þessum ævintýralega fylgjendafjölda Rúriks og buðu einhverjar þeirra notendum upp á að veðja á það hvort Rúrik næði milljón fylgjendum á meðan að HM stæði yfir.
Það hefur nú náðst, þrátt fyrir að þrjár vikur séu enn eftir af knattspyrnuveislunni í Rússlandi.
Hvað ætlum við sem þjóð að gera þegar Rúrik nær 1.mill á insta? Þurfum að halda eitthvað uppá þetta 🏆
— Svava Gretarsdóttir (@SvavaGretars) June 23, 2018