Fann hamingjuna þegar hún varð móðir 51 árs

Janet Jackson er hamingjusöm í móðurhlutverkinu.
Janet Jackson er hamingjusöm í móðurhlutverkinu. AFP

Söngkonan Janet Jackson opnaði sig um hamingjuna og erfiðleika sem hún hefur glímt við í bréfi í tímaritinu Essence í tilefni þess að hún prýðir forsíðu júlíblaðsins. Hún hefur þó átt auðvelt með að finna hamingjuna eftir að hún eignaðist son fyrir ári þá 51 árs. 

Þrátt fyrir velgengnina segist Jackson hafa glímt við lélegt sjálfsálit og þunglyndi í gegnum lífið. „Þegar það kemur að hamingju er ég enginn sérfræðingur. Ég hef mína reynslu sem leiðarvísi. Ég þekki mikla hamingju og mikinn dapurleika,“ skrifaði söngkonan. 

Í dag er hún þó hamingjusöm og þakkar bæði sambandi sínu við guð og syni sínum fyrir það. „Hámark hamingjunnar er að halda á ungum syni mínum og hlusta á hann hjala, eða horfa á brosandi augu hans og sjá hann bregðast við blíðu minni,“ skrifaði Jackson. 

Janet Jackson kom fram á Billboard-tónlistarverðlaununum í maí.
Janet Jackson kom fram á Billboard-tónlistarverðlaununum í maí. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson