Rapparinn Kanye West skoðar myndir af eiginkonu sinni, Kim Kardashian, þegar hann skrifar tónlist. Bítillinn gamli Paul McCartney sagði frá þessu í viðtali við DIY Magazine á dögunum. McCartney og Kanye gáfu út lag saman árið 2015 ásamt söngkonunni Rihanna.
McCartney sagði „Við eyddum tveimur til þremur seinni pörtum á hóteli í Beverly Hills. Við vorum á bakvið hótelið og hann var með tvo míkrófóna ef honum myndi detta eitthvað í hug. Ég var að glamra á gítarinn og Kanye var í tölvunni að skoða myndir af Kim. Og ég hugsaði ætlar hann ekkert að fara semja tónlist? En svo fattaði ég að hann var að semja. Hún er innblásturinn.“