Söngkonan Demi Lovato segir frá því í nýju lagi að hún sé ekki lengur edrú. Lagið ber heitið „Sober“ og biður hún meðal annars mömmu sína afsökunar á því að vera ekki lengur edrú. Lovato hefur glímt við geðsjúkdóma og fíknisjúkdóma allt frá því að hún var táningur. Í mars síðastliðinn greindi hún frá því að hún hafi verið 6 ár edrú. Söngkonan hefur hinsvegar fallið eftir það og er ekki lengur edrú.