Harry Bretaprins og eiginkona hans Meghan, hertogaynja af Sussex, sinntu opinberum skyldum sínum í dag þegar garðveisla var haldin í tilefni af sjötugsafmæli Karls Bretaprins.
Sex þúsund manns sem koma að góðgerðarmálum sem Karl vinnur að var boðið í veisluna sem haldin var í garði Buckingham-hallar í Lundúnum. Karl verður síðan sjötugur 14. nóvember.
Nýgiftu hjónin gátu ekki farið strax í brúðkaupsferð vegna garðveislunnar og hafa því notið hveitibrauðsdaganna í blíðviðrinu á Englandi síðan á laugardaginn.