Hugh Grant að kvænast

Hugh Grant og Anna Eberstein.
Hugh Grant og Anna Eberstein. AFP

Einn þekktasti piparsveinn Bretlands er á leið í hnapphelduna. Leikarinn Hugh Grant og unnusta hans, Anna Eberstein, ætla að ganga í hjónaband síðar í mánuðinum en þau eiga þrjú börn saman. Eberstein er sænsk og starfar sem sjónvarpsframleiðandi.

Fjölmargir breskir fjölmiðlar hafa í morgun birt skjáskot af tilkynningunni um brúðkaupið. Ljóst er að þau verða gefin saman á skrifstofu borgarstjórnar í Chelsea (Chelsea Old Town Hall), sem er skammt frá heimili þeirra í Notting Hill. Grant, sem er 57 ára gamall á fimm börn, þar af tvö með fyrrverandi sambýliskonu, Tinglan Hon.

Eberstein, sem er 39 ára, á þrjú börn með Grant en það elsta er sonur fæddur 2012 og svo eignuðust þau dóttur í desember 2015. Í mars á þessu ári greindi fyrrverandi unnusta Grant, Liz Hurley, frá því að þau Grant og Eberstein væru nýbúin að eignast barn. Breskir fjölmiðlar hafa ekki náð að grafa upp um hvort það er stelpa eða strákur né heldur hvenær barnið fæddist.

Sun hefur eftir heimildarmönnum  að þetta komi á óvart og að enginn vinur leikarans hafi átt von á því að Grant gengi í hjónaband. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler